Ég býð upp á ráðgjöf og handleiðslu fyrir einstaklinga, pör og hópa, í einkalífi og starfi. Þar nýti ég menntun mína sem félagsráðgjafi og fjölbreytta reynslu úr einkalífi mínu og störfum, en einnig menntun á sviði drauma og fornrar menningar.
Meðal þess sem ég legg áherslu á er að vinna með markmið og lífstilgang, endurskoða sjálfsmyndina, vinna með ytri og innri samskipti, lífssögu, áhugasvið, hæfileika, sköpunarkraft og síðast en ekki síst drauma og langanir.
Í handleiðslu hópa vinn ég með möguleikana sem búa í samstarfi, þannig að hæfileikar allra fái notið sín. Við skoðum leiðir til að draga úr togstreitu og tortryggni og byggja upp traust og samhæfingu.
Í ráðgjafarvinnu nýti ég m.a. drauma næturinnar, hugarferðir, innri hlustun, verkefni og skapandi tjáningu, í bland við samtalið.
Einnig býð ég upp á sérstaka draumaráðgjöf fyrir þau sem vilja læra að vinna með eigin drauma, bæði einstaklinga, pör og hópa.